Við viljum aðstoða viðskiptavini okkar með auglýsinga- og kynningarvörur 

IDÉ House of Brands er stærsti birgi fyrir auglýsinga- og kynningavörur á Norðurlöndunum. Okkar stefna er að aðstoða fyrirtæki við að auka sýnileika á vörumerki sínu með varningi. 

Hlutverk auglýsingavara er að kynna fyrirtæki í gegnum vörur. Hver vara hefur sögu að segja en það skiptir okku öllu máli að hún sé sögð á réttan hátt. 

Okkar styrkleikar liggja í reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Starfsfólk okkar er með yfir 35 ára reynslu í auglýsingavörum og erum við því snögg að finna réttu vöruna fyrir hvert og eitt tilefni. 

Við vinnum í markvissum teymum innan fyrirtækisins. Innkaupadeild sem er með langtíma samband við framleiðendur, hönnuðir sem aðstoða þig að koma þinni hugmynd í rétta útfærslu, prentaðilar sem geta afhent hratt og örugglega og vöruhús sem sér um að koma öllu á réttan stað á réttum tíma. 

Sérfræðingar í auglýsingavörum síðan 1987 

 

Starfsfólk okkar hefur mikla þekkingu og reynslu til að finna réttu vöruna sem hentar hverju tækifæri á rétta verðinu.

Sterk innkaupadeild Innkaupadeildin okkar myndar langtímasamband við framleiðendur. 

Hönnuðir okkar kynna sér vörumerkið þitt og tryggja að hönnunin og skilaboð vörunnar endurspegla ykkar sýn. 

Vöruhúsið okkar sér um dreifingu um allan heim. 

Okkar hæfni 

Við viljum þjónusta viðskiptavini okkar vel! Í viðbót við að útvega auglýsingavörur þá bjóðum við einnig upp á frekari þjónustu við að einfalda kaupferlið þitt. Við getum komið að hugmyndavinnu og sett saman nokkrar vörur sem mynda flott úrval og góða heildarmynd. Við getum gert persónulegu vefverslun einungis fyrir þínar vörur, séð um dreifingar og hönnunar verkefni.

Hönnun og heildarhugmynd 

Frumlegheit og vel úthugsað val á vörum er mikilvægt til að fanga athygli viðskiptavinar. Við leggjum mikið uppúr því að búa til heildarpakka af góðum vörum og hugmyndum til þess að ná sem best til ykkar viðskiptavina. 

 

Vefverslun

IDÉ House of brands hannar og starfrækir vefverslanir fyrir viðskiptavini sína. Þetta þýðir að allur þinn varningur er fáanlegur í vefverslun sem auðveldar starfsfólki þínu að panta vörurnar og fá þær sendar til sín. Við sjáum um sendingar og lagerhald og stýrum nú yfir 170 vefverslunum fyrir fyrirtæki út um öll Norðurlöndin. 

 

Lager og dreifing

Við bjóðum upp á lagerhald og dreifingar víðsvegar um heiminn. 

 

Hafa samband: 

Unnur María Guðmundsdóttir - Þjónustustjóri og sölumaður

846-4258

unnur@idegroup.is 

 

Magnús Guðmundsson - Framkvæmdastjóri 

773-5992

magnus@idegroup.is

 

Ólöf Lund - Sölufulltrúi

618-2897

olof@idegroup.is

 

 


Gæði 

Okkar markmið og aðferðir hjálpa okkur að lágmarka kolefnisfótspor og áhrif þess á umhverfið. Við hvetjum alla okkar viðskiptavini og birgja til þess að gera slíkt hið sama.

 

Umhverfi 

IDÉ House of Brands vinnur fast að því að hafa sjálfbærni að leiðarljósi þegar kemur að umhverfi, virðingu við fólk og umhverfi. Markmiðið með sjálfbærni er að núverandi kynslóð geti mætt sínum þörfum án þess að eyðileggja fyrir komandi kynslóðum.

 

Siðferði

Við höfum aðlagað innkaupaferlið okkar svo að birgjarnir okkar mæti þeim kröfum sem við setjum til að uppfylla góð skilyrði fyrir fólk, samfélög og umhverfi. Innkaupadeildin okkar vinnur virkt að því að skapa langtíma samband með birgjum okkar sem sýna vilja í verki hvað þetta varðar. 

 


SKRIFSTOFUR OKKAR

Með skrifstofur í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi , Danmörku og Íslandi náum við að þjónusta þig persónulega á öllum Norðurlöndunum. Öll löndin hafa mismunandi menningu og því er mikilvægt að vörurnar séu aðlagaðar og endurspegli sem best hvert og eitt land.


SKRIFSTOFUR OKKAR

Stockholm, Sverige
Barnhusgatan 16, vaning 2
111 23 Stockholm

info@idegroup.se 
+46 8 556 023 60

Kolding, Danmark
Plantinvej 67
6000 Kolding

ide@idegroup.dk
+45 75 75 25 75

Kópavogur, Ísland
Turnahvarf 6b
203 Kópavogur

ide@idegroup.is

+354 773 5992

 

Drøbak, Norway
Dyrløkkeveien 19
1448 Drøbak

ide@idegroup.no
+47 64 90 51 60